Atvinnuleysi var 3,6% í september 2022 samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands. Árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka var 79,3% og hlutfall starfandi 76,5%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi dróst saman um 0,8 prósentustig á milli mánaða á meðan hlutfall starfandi jókst um 0,4 prósentustig. Leitni árstíðaleiðrétts atvinnuleysis jókst um 0,1 prósentustig síðustu sex mánuði.
Samkvæmt mælingu vinnumarkaðsrannsóknar, án árstíðaleiðréttingar, voru 215.100 (± 6.900) einstaklingar á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði í september 2022 sem jafngildir 78,5% (± 2,5) atvinnuþátttöku. Af vinnuaflinu voru 209.200 (± 5.500) starfandi og 5.900 (± 2.500) atvinnulausir og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 76,4% (± 2,6) og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli 2,7% (± 1,2). Samanburður við september 2021 sýnir að atvinnuleysi dróst saman um 0,1 prósentustig á milli ára og hlutfall starfandi jókst um 0,5 prósentustig.
Alls voru 58.800 einstaklingar utan vinnumarkaðar í september 2022 eða 21,5% af mannfjölda. Í hópi 16-24 ára voru 12.200 einstaklingar utan vinnumarkaðar og 46.600 í hópi 25-74 ára. Fjöldi utan vinnumarkaðar jókst um 4.600 einstaklinga á milli mánaða. Fjöldi í hópi 16-24 ára jókst um 5.900 einstaklinga á milli mánaða á meðan fjöldinn dróst saman um 1.300 í hópi 25-74 ára. Um er að ræða hefðbundið mynstur á haustmánuðum þegar nemar hverfa af vinnumarkaði og halda áfram námi.
Áætlað er að 19.700 einstaklingar hafi haft óuppfyllta þörf fyrir atvinnu (slaki) í september 2022 sem jafngildir 9,0% af samanlögðu vinnuafli og mögulegu vinnuafli. Slaki á vinnumarkaði hefur dregist saman um 3,1 prósentustig á milli ára samanborið við september 2021. Árstíðaleiðrétt leitni slaka hefur dregist saman um 0,1 prósentustig síðustu sex mánuði.
Samtala undirliða kann að vera ósamhljóða heildarniðurstöðum þar sem tölur eru námundaðar að næsta hundraði.
Um gögnin
Niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar fyrir september 2022 ná til fimm vikna frá 29. ágúst til og með 2. október. Í úrtak völdust af handahófi 1.924 einstaklingar á aldrinum 16-74 ára með lögheimili á Íslandi. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis var nettóúrtakið 1.885 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 1.095 einstaklingum sem jafngildir 58,1% svarhlutfalli.