FRÉTT VÍSINDI OG TÆKNI 11. OKTÓBER 2016

Útgjöld fyrirtækja og stofnana til rannsókna- og þróunarstarfs voru samtals 48,5 milljarðar árið 2015, eða 2,19% af vergri landsframleiðslu. Er það aukning úr 2,01% árið 2014 og 1,76% árið 2013, sem skýrist af auknum R&Þ útgjöldum fyrirtækja, sem jukust úr 18,7 milljörðum, 2013, í 24,7 milljarða, 2014, og mælast 31,4 milljarðar, 2015.

Áður útgefnar tölur yfir R&Þ-útgjöld á árunum 2013 og 2014 hafa verið endurskoðaðar útfrá nýafstaðinni gagnasöfnun og töflur nú verið uppfærðar á vefsíðu Hagstofu Íslands.

Útgjöld til rannsókna og þróunar 2013–2015 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.