FRÉTT VÍSINDI OG TÆKNI 22. NÓVEMBER 2021

Heildarútgjöld til rannsókna og þróunarstarfs á árinu 2020 voru 72,7 miljarðar króna en það jafngildir 2,47% af vergri landsframleiðslu (VLF). Er það hæsta hlutfall útgjalda til málaflokksins af vergri landsframleiðslu sem mælst hefur frá því að Hagstofa Íslands tók við umsjón tölfræðinnar árið 2014.

Árið 2019 voru útgjöld 70,8 milljarðar króna eða 2,32% af VLF og árið 2018 voru útgjöldin 56,9 milljarðar eða 2,0% af VLF. Hlutfallsleg útgjöld til rannsókna og þróunar af vergri landsframleiðslu hafa aukist um 0,15 prósentustig á milli ára.

Gagnasöfnun Hagstofunnar nær yfir fyrirtæki, sjálfseignastofnanir, háskólastofnanir og aðrar opinberar stofnanir. Skiptust heildarútgjöldin er þannig að útgjöld fyrirtækja og sjálfseignastofnana voru 49,4 milljarðar króna, útgjöld háskólastofnana voru 20,85 miljarðar og heildarútgjöld annarra opinberra stofnanna 2,45 miljarðar.

Um gögnin
Gögnunum er safnað árlega frá háskólastofnunum og öðrum opinberum stofnunum. Gagnasöfnun fyrirtækja og sjálfseignarstofnana fer fram annað hvert ár og snúa þá spurningar annars vegar að útgjöldum liðins árs og hins vegar að áætluðum útgjöldum þess árs sem listinn er lagður fyrir. Tölum fyrir árið 2020 var safnað á öðrum ársfjórðungi ársins 2021.

Tölur um heildarútgjöld sem hlutfall af vergri landsframleiðslu eru háðar breytingum á útreikningum á landsframleiðslu en jafnframt geta tölur fyrri ára verið uppfærðar í kjölfar síðari gagnasafnanna. Heildarútgjöld fyrir ára hafa þannig verið uppfærð með birtingu á niðurstöðum ársins 2020

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.