FRÉTT VÍSINDI OG TÆKNI 12. FEBRÚAR 2026

Áætluð heildarútgjöld til rannsókna og þróunarstarfs á árinu 2024 námu rúmlega 113,5 milljörðum króna en það jafngildir 2,48% af vergri landsframleiðslu (VLF). Um minniháttar samdrátt er að ræða miðað við raungögn ársins 2023 þegar síðasta rannsókn var gerð.

Hafa ber í huga hvað fyrirtæki varðar að tölurnar fyrir 2024 eru áætlaðar tölur en ekki rauntölur en fyrirtækjakönnunin er gerð á tveggja ára fresti. Útgjöld hjá háskólum jukust á milli ára úr 0,6% í 0,63% af landsframleiðslu og hjá opinberum stofnunum úr 0,06% í 0,08% af landsframleiðslu.

Gögn um útgjöld til rannsókna- og þróunarstarfs sem hlutfall af landsframleiðslu innan Evrópska efnahagssvæðisins hafa verið uppfærð til og með 2024. Ísland var í sjöunda sæti 2024 sem er svipað og á undanförnum árum.

Gagnasöfnun Hagstofunnar nær yfir fyrirtæki, sjálfseignastofnanir, háskólastofnanir og aðrar opinberar stofnanir. Skiptust heildarútgjöldin þannig að útgjöld fyrirtækja og sjálfseignastofnana voru 80,96 milljarðar króna, útgjöld háskólastofnana voru 29 milljarðar og heildarútgjöld annarra opinberra stofnanna tæplega 3,6 milljarðar.

Skipting eftir tegundum útgjalda er nú birt í fyrsta sinn og tekur til áranna 2023 og 2024.

Um gögnin
Gögnunum er safnað árlega frá háskólastofnunum og öðrum opinberum stofnunum. Gagnasöfnun fyrirtækja og sjálfseignarstofnana fer fram annað hvert ár og snúa þá spurningar annars vegar að útgjöldum liðins árs og hins vegar að áætluðum útgjöldum það ár sem listinn er lagður fyrir. Tölum fyrir árið 2023 var safnað á öðrum ársfjórðungi ársins 2024. Tölum um starfsmannafjölda í rannsókna- og þróunarstarfi er safnað annað hvert ár.

Tölur um heildarútgjöld sem hlutfall af vergri landsframleiðslu eru háðar breytingum á útreikningum á landsframleiðslu en jafnframt geta tölur fyrri ára verið uppfærðar í kjölfar síðari gagnasafnana.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.