Vísitala heildarlaunakostnaðar á fyrsta ársfjórðungi 2007 hækkaði um 2,1% í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð (F) frá fyrri ársfjórðungi en lækkaði í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu (G) um 1,7%, í samgöngum og flutningum (I) um 0,9% og í iðnaði (D) um 0,4%.
Á sama tímabili hækkaði vísitala heildarlaunakostnaðar án óreglulegra greiðslna um 3,8 % til 5,4%, mest í samgöngum og flutningum (I) en minnst í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu (G). Vísitala heildarlaunakostnaðar án óreglulegra greiðslna er ólík vísitölu heildarlaunakostnaðar að því leyti að hún tekur ekki tillit til greiðslna sem ekki eru gerðar upp á hverju útborgunartímabili s.s. desemberuppbót.
Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði kváðu almennt á um 2,9% hækkun launataxta frá 1. janúar 2007. Tryggingagjald lækkaði um 0,45% frá áramótum og er nú 5,34%. Þá hækkaði mótframlag atvinnurekanda til samtryggingarlífeyrissjóðs úr 7% í 8% á sama tíma.
Vísitala launakostnaðar, sem gefin er út ársfjórðungslega, sýnir breytingar á launakostnaði á vinnustund. Um er að ræða kostnaðarvísitölu sem ekki er leiðrétt fyrir breytingum í samsetningu vinnuafls og vinnustunda. Breytingar á vísitölu launakostnaðar geta því endurspeglað verðbreytingu vinnustundar, breytt hlutfall yfirvinnustunda, aukið hlutfall vinnuafls með há/lág laun eða samspil umræddra þátta.
Breyting vísitalna frá fyrra ári, % | ||||
1. ársfj. 2007 | Heildar- | |||
launakostnaður | ||||
Heildar- | Annar launa- | án óreglulegra | ||
launakostnaður | Heildarlaun | kostnaður | geiðslna | |
Iðnaður (D) | 13,4 | 13,0 | 15,0 | 14,0 |
Byggingarst. og mannv. (F) | 7,7 | 7,5 | 8,7 | 8,1 |
Verslun og viðgerðaþ. (G) | 4,0 | 3,9 | 4,5 | 6,5 |
Samgöngur og flutningar (I) | 11,4 | 11,3 | 12,0 | 10,3 |