Fréttasafn Útgáfur 14. JÚNÍ 2011

Heildarlaunakostnaður á greidda stund lækkaði frá fyrri ársfjórðungi um 4,2% í iðnaði, 3,4% í verslun, 2,8% í samgöngum og 1,5% í byggingarstarfsemi.

Þá lækkaði heildarlaunakostnaður án óreglulegra greiðslna um 0,8% í iðnaði frá fyrri ársfjórðungi. Á sama tímabili hækkaði heildarlaunakostnaður án óreglulegra greiðslna um 0,3% í verslun og um 0,6% í atvinnugreinunum byggingarstarfsemi og samgöngum. Í heildarlaunakostnaði án óreglulegra greiðslna eru greiðslur útilokaðar sem ekki eru gerðar upp á hverju útborgunartímabili eins og desember- og orlofsuppbót.

Ársbreyting heildarlaunakostnaðar á greidda stund frá fyrsta ársfjórðungi 2010 var á bilinu 4,1% til 8,9%. Mest var hækkunin í byggingarstarfsemi en minnst í iðnaði.

Vísitala launakostnaðar er kostnaðarvísitala sem sýnir breytingar á launakostnaði á greidda stund og er ekki leiðrétt fyrir breytingum í samsetningu vinnuafls og vinnustunda. Niðurstöður eru birtar með fyrirvara um breytingar. Vísitala launakostnaðar er gefin út ársfjórðungslega og reiknuð samkvæmt reglugerð (ESB) nr. 450/2003.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.