Heildarlaunakostnaður á greidda stund lækkaði frá fyrri ársfjórðungi um 0,9% í iðnaði, 2,3% í verslun og 3,3% í samgöngum. Þá var heildarlaunakostnaður óbreyttur frá fyrri ársfjórðungi í byggingarstarfsemi.
Heildarlaunakostnaður án óreglulegra greiðslna á greidda stund jókst frá fyrri ársfjórðungi um 4,1% í samgöngum, 3,9% í iðnaði, 2,6% í verslun og um 2,3% í byggingarstarfsemi. Í heildarlaunakostnaði án óreglulegra greiðslna eru greiðslur útilokaðar sem ekki eru gerðar upp á hverju útborgunartímabili eins og desember- og orlofsuppbót.
Árshækkun heildarlaunakostnaðar á greidda stund frá 4. ársfjórðungi 2011 var á bilinu 6,5% til 9,8%. Mest var hækkunin í iðnaði en minnst í verslun. Heildarlaunakostnaður án óreglulegra greiðslna jókst einnig mest í iðnaði milli ára um 9,9% og minnst var aukningin í verslun eða 6,7%.
Vísitala launakostnaðar er kostnaðarvísitala sem sýnir breytingar á launakostnaði á greidda vinnustund og er ekki leiðrétt fyrir breytingum í samsetningu vinnuafls og vinnustunda. Niðurstöður eru birtar með fyrirvara um breytingar. Vísitala launakostnaðar er gefin út ársfjórðungslega og reiknuð samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins nr. 450/2003.
Talnaefni