Fréttasafn Útgáfur 13. DESEMBER 2011

Heildarlaunakostnaður á greidda stund dróst saman frá fyrri ársfjórðungi um 2,1% í iðnaði, 2,4% í samgöngum, 5% í byggingarstarfsemi og um 6,5% í verslun.

Heildarlaunakostnaður án óreglulegra greiðslna á greidda stund jókst frá fyrri ársfjórðungi um 5,5% í iðnaði, 0,5% í samgöngum og um 0,2% í byggingarstarfsemi og verslun. Í heildarlaunakostnaði án óreglulegra greiðslna eru greiðslur útilokaðar sem ekki eru gerðar upp á hverju útborgunartímabili.

Árshækkun heildarlaunakostnaðar á greidda stund frá 3. ársfjórðungi 2010 var á bilinu 5,3% til 8,3%. Mest var hækkunin í samgöngum en minnst í iðnaði. Á sama tímabili jókst heildarlaunakostnaður án óreglulegra greiðslna mest í byggingarstarfsemi eða 7,6% en minnst í verslun 5,1%.


 

Vísitala launakostnaðar er kostnaðarvísitala sem sýnir breytingar á launakostnaði á greidda vinnustund og er ekki leiðrétt fyrir breytingum í samsetningu vinnuafls og vinnustunda. Niðurstöður eru birtar með fyrirvara um breytingar. Vísitala launakostnaðar er gefin út ársfjórðungslega og reiknuð samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins nr. 450/2003.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.