Fréttasafn Útgáfur 15. MARS 2011

Heildarlaunakostnaður á greidda stund jókst um 11% frá fyrri ársfjórðungi í samgöngum og flutningum, 9,7% í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu, 8,5% í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og 7,3% í iðnaði.

Ef litið er til heildarlaunakostnaðar án óreglulegra greiðslna var aukningin frá fyrri ársfjórðungi 6,3% í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, 4,7% í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu, 3,8% í samgöngum og flutningum og 1,8% í iðnaði. Í heildarlaunakostnaði án óreglulegra greiðslna eru greiðslur útilokaðar sem ekki eru gerðar upp á hverju útborgunartímabili eins og desemberuppbót.

Árshækkun heildarlaunakostnaðar á greidda stund frá 4. ársfjórðungi 2009 var á bilinu 8,2% til 9,5%. Mest var hækkunin í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu en minnst í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð.

 


Vísitala launakostnaðar er kostnaðarvísitala sem sýnir breytingar á launakostnaði á greidda stund og er ekki leiðrétt fyrir breytingum í samsetningu vinnuafls og vinnustunda. Niðurstöður eru birtar með fyrirvara um breytingar. Vísitala launakostnaðar er gefin út ársfjórðungslega og reiknuð samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins (EB) nr. 450/2003.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.