Fréttasafn Útgáfur 14. MARS 2013

Heildarlaunakostnaður á greidda stund jókst frá fyrri ársfjórðungi um 11,9% í samgöngum, 8,5% í verslun, 7,4% í iðnaði og um 5,0% í byggingarstarfsemi.

Heildarlaunakostnaður án óreglulegra greiðslna á greidda stund jókst frá fyrri ársfjórðungi um 4,4% í verslun, 3,8% í samgöngum, 2,0% í byggingarstarfsemi og um 1,7% í iðnaði. Í heildarlaunakostnaði án óreglulegra greiðslna eru undanskildar greiðslur sem ekki eru gerðar upp á hverju útborgunartímabili eins og desember- og orlofsuppbót.

Árshækkun heildarlaunakostnaðar á greidda stund frá 4. ársfjórðungi 2011 var á bilinu 2,8% til 4,5%. Mest var hækkunin í byggingarstarfsemi en minnst í verslun. Á sama tímabili jókst heildarlaunakostnaður án óreglulegra greiðslna mest í iðnaði eða 5,7% en minnst í byggingarstarfsemi 4,2%.

 

Vísitala launakostnaðar er kostnaðarvísitala sem sýnir breytingar á launakostnaði á greidda vinnustund og er ekki leiðrétt fyrir breytingum í samsetningu vinnuafls og vinnustunda. Niðurstöður eru birtar með fyrirvara um breytingar. Vísitala launakostnaðar er gefin út ársfjórðungslega og reiknuð samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins nr. 450/2003.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.