Afgreiðsla Hagstofu Íslands verður lokuð frá og með þriðjudeginum 24. mars og verður eingöngu boðið upp á rafræna afgreiðslu. Er þetta gert vegna yfirstandandi faraldurs (Covid-19).
Símaþjónusta verður með reglubundnum hætti og verður hún opin frá kl. 9-12 og kl. 13-16.
Við bendum notendum á að fjölmörgum erindum er hægt að sinna með rafrænum hætti með því að senda inn erindi á netfangið: upplysingar@hagstofa.is eða að hringja í síma 528 1000.
Gert er ráð fyrir að birtingaráætlun verði framfylgt þar til annað verður ákveðið.
Ný tilkynning verður send út þegar aðstæður breytast.