FRÉTT ÝMISLEGT 28. APRÍL 2017

Ársskýrsla Hagstofu Íslands fyrir árið 2016 hefur nú verið gefin út. Eins og í fyrra er skýrslan eingöngu aðgengileg á rafrænu sniði, en þetta er í fyrsta sinn sem hún kemur út í vefumhverfi. Slóðin er arsskyrsla2016.hagstofa.is.

Í ársskýrslunni er gerð grein fyrir helstu áherslumálum stofnunarinnar árið 2016 og þeim fjármunum sem varið er til hagskýrslugerðar. Auk skýrslu yfirstjórnar og umfjöllunar um fjármál og rekstur er í skýrslunni fjallað um gæði hagtalna, afnot af gögnum, samstarf við notendur, lög Evrópusambandsins um hagskýrslur og fjölmargt fleira.

Ársskýrsla 2016 — Útgáfa

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.