Ársskýrsla Hagstofu Íslands fyrir árið 2020 hefur nú verið gefin út. Líkt og undanfarin ár er skýrslan eingöngu aðgengileg á rafrænu sniði.
Í ársskýrslunni er gerð grein fyrir helstu áherslumálum stofnunarinnar árið 2020 og þeim fjármunum sem varið er til hagskýrslugerðar. Auk skýrslu yfirstjórnar og umfjöllunar um fjármál og rekstur er í skýrslunni fjallað um notendur, gagnasöfnun, miðlun og ýmislegt fleira.