FRÉTT ÝMISLEGT 12. MARS 2009

Vefur Hagstofu Íslands hefur aldrei verið jafn vel sóttur og á síðustu mánuðum. Sérstaklega hefur áhugi á efnahagstölum á enskum hluta vefsins aukist. Af því má ráða að efnahagsleg áföll undanfarinna mánaða hafi aukið þörf notenda fyrir áreiðanlegar upplýsingar sem unnar eru samkvæmt alþjóðlegum stöðlum. Á vef Hagstofu Íslands er að finna mikið magn tölulegra upplýsinga um íslenskt þjóðfélag og hag einstaklinga, heimila og fyrirtækja.

Hagstofan mælir notkun á hagtölum, bæði á íslenskum hluta vefsins (www.hagstofa.is) og enskum (www.statice.is). Á íslenska hluta vefsins hefur notkunin aukist jafnt og þétt undanfarin ár en umferð um enska hlutann hefur tekið stökk á milli ára. Notkunin jókst um 192% milli áranna 2005 og 2006 á enska hlutanum og 219% milli áranna 2008 og 2009. Í febrúar 2009 voru gerðar um 124 þúsund fyrirspurnir í veftöflur á hagtöluhluta vefsins eða að meðaltali um 4.400 á sólarhring. Eftirfarandi mynd sýnir fjölda fyrirspurna í febrúar 2004–2009.

Eftirspurnin er þó mismikil eftir efnisflokkum og í sumum tilfellum eru enskar töflur meira notaðar en íslenskar. Í febrúar síðastliðnum voru tæplega 28 þúsund fyrirspurnir gerðar í enskar veftöflur um þjóðhagsreikninga og opinber fjármál en mjög óvenjulegt er að sjá svo mikla notkun á enska vefnum. Til samanburðar voru 1.800 fyrirspurnir í sama efni í febrúar í fyrra. Á sama tíma var notkunin á enska hluta vefsins meiri en á þeim íslenska í sex af 15 efnisflokkum. Eftirfarandi mynd sýnir fyrirspurnir í veftöflur í sjö vinsælustu efnisflokkunum.

Vefur Hagstofunnar hefur verið í samræmdri vefmælingu hjá Modernus frá árinu 2003. Samkvæmt henni hefur gestum fjölgað jafnt og þétt en óvenju mikið á síðasta ári. Þannig hefur einstökum gestum fjölgað um rúm 22% á milli áranna 2007 og 2008.

Myndin hér að ofan sýnir að gestir voru álíka margir í október 2008 og í janúar 2006. Þeir hafa ekki verið fleiri í annan tíma. Í janúar 2006 urðu Íslendingar 300.000 en af því tilefni kynnti Hagstofan mannfjöldaklukkuna sem skýrir hinn mikla fjölda gesta þá. Heimsóknir hafa einnig aukist um 22% á milli áranna 2007 og 2008 eða frá um 450 þúsund í 550 þúsund.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.