FRÉTT ÝMISLEGT 23. NÓVEMBER 2015

Hagstofa Íslands hefur í dag gefið út birtingaráætlun sína fyrir árið 2016. Útgáfa birtingaráætlunar er í samræmi við verklag við hagskýrslugerð sem mótast hefur á alþjóðavettvangi og tryggir jafnan aðgang að opinberum hagtölum.

Sem fyrr mun Hagstofan gefa út fréttatilkynningu verði breytingar á birtingaráætluninni fyrir eftirtalda flokka:

  • verðtryggingarvísitölur
    - vísitala neysluverðs
    - vísitala byggingarkostnaðar
  • landsframleiðsla
  • ársfjórðungslegar vinnumarkaðstölur
  • mánaðartölur í utanríkisverslun
  • mánaðarleg launavísitala (þ.m.t. vísitala greiðslujöfnunar)


Efni sem ekki er á áætlun á heilu almanaksári er fært á birtingaráætlunina eftir þörfum með minnst 10 daga fyrirvara. Þetta felur í sér að dagsetningar næstu 10 almanaksdaga eru staðfestar og taka ekki breytingum nema gefin sé út fréttatilkynning um það. Aðrar dagsetningar á birtingaráætluninni geta tekið breytingum.

Sjá frekar reglur um birtingar Hagstofunnar.

Hagstofan birtir öllum notendum sínum efni sitt samtímis. Því er allt efni á birtingaráætlun gefið út kl. 9.00 að morgni. Notendur geta fengið sendar tilkynningar um nýjar fréttir með tölvupósti skrái þeir sig í áskriftarþjónustu Hagstofunnar. Auk þess veitir skiptiborð Hagstofunnar, upplýsingaþjónusta eða ábyrgðarmaður birtingar nánari upplýsingar frá kl. 9.00 birtingardaginn.

Birtingaráætlun

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.