FRÉTT ÝMISLEGT 12. NÓVEMBER 2021

Birtingaráætlun Hagstofunnar fyrir næsta almanaksár er gefin út í dag, en útgáfan er í samræmi við alþjóðlegar kröfur um hagskýrslugerð og tryggir jafnan aðgang notenda að opinberum hagtölum.

Á birtingaráætlun eru staðfestar dagsetningar fyrir verðtryggingarvísitölur, launavísitölu svo og hagtölur um landsframleiðslu, vinnumarkað og utanríkisverslun. Verði breytingar á birtingaráætluninni í þessum flokkum mun Hagstofan árétta það sérstaklega með fréttatilkynningu. Dagsetningar næstu átta virka daga á áætluninni eru staðfestar og taka ekki breytingum án þess að gefin sé út fréttatilkynning um það.

Birtingar Hagstofunnar eru gerðar aðgengilegar öllum notendum samtímis kl. 9.00 að morgni birtingardags. Notendur geta fengið sendar tilkynningar um nýjar fréttir með tölvupósti skrái þeir sig í áskriftarþjónustu Hagstofunnar.

Reglur um birtingar Hagstofunnar

Birtingaráætlun 2022

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.