FRÉTT ÝMISLEGT 03. OKTÓBER 2007

Hagstofa Íslands hefur undanfarin ár birt áætlun um fyrirhugaða útgáfudaga frétta og uppfærslu talna á vefnum eitt ár fram í tímann. Gerð birtingaráætlunar og tilkynning um hana er í samræmi við verklagsreglur í hagskýrslugerð. 

Áætlaðir útgáfudagar Hagtíðinda og Landshaga, árbókar Hagtofunnar, verða settir á birtingaráætlun jafnóðum og dagsetning útgáfu liggur fyrir.

Eftirfarandi skal sérstaklega tekið fram um birtingu frétta Hagstofunnar: 

  • Allar fréttir Hagstofunnar eru gefnar út kl. 9.00 að morgni. 
  • Hagstofan birtir öllum aðilum fréttirnar samtímis.
  • Hagstofan veitir samtímis aðgang að öllu því talnaefni sem fylgir viðkomandi frétt.
  • Ef óhjákvæmilegt reynist að víkja frá áður útgefinni dagsetningu í birtingaráætlun tilgreinir Hagstofan nýja dagsetningu á birtingaráætluninni. 

Hægt er að fá tilkynningu um birtingu fréttar með tölvupósti auk þess sem skiptiborð Hagstofunnar, upplýsingaþjónusta eða viðkomandi fagdeild veitir upplýsingar frá kl. 9.00 að morgni birtingardags.

Birtingaráætlun

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.