Á hverju hausti birtir Hagstofa Íslands áætlun um fyrirhugaða útgáfudaga frétta og uppfærslu talna á vefnum á komandi ári. Gerð birtingaráætlunar og tilkynning um hana er í samræmi við verklagsreglur í hagskýrslugerð.  
Á næsta ári eru um 180 fréttir á birtingaráætlun auk rúmlega 40 annarra reglulegra uppfærslna á talnaefni. Fréttum Hagstofunnar hefur fjölgað ár frá ári en á áætlun fyrir árið 2009 eru 35% fleiri fréttir en fyrir 5 árum svo dæmi sé tekið. 
Eftirfarandi skal sérstaklega tekið fram um birtingu frétta Hagstofunnar:  
Allar fréttir Hagstofunnar eru gefnar út kl. 9.00 að morgni.  
- Hagstofan birtir öllum aðilum fréttirnar samtímis.
 - Hagstofan veitir samtímis aðgang að öllu því talnaefni sem fylgir viðkomandi frétt.
 -  Ef óhjákvæmilegt reynist að víkja frá áður útgefinni dagsetningu í birtingaráætlun gefur Hagstofan út frétt þess efnis eða tilgreinir nýja dagsetningu á  
birtingaráætluninni. 
Hægt er að fá tilkynningu um birtingu fréttar með tölvupósti auk þess sem skiptiborð Hagstofunnar, upplýsingaþjónusta eða viðkomandi fagdeild veitir upplýsingar frá kl. 9.00 að morgni birtingardags.