Hagstofa Íslands flytur í Borgartún 26 í lok vikunnar og standa flutningarnir yfir alla næstu helgi.
Vegna flutninganna mun vefur Hagstofunnar og öll kerfi (eins og vefskilakerfi og talnaefni ásamt API-tengingum) liggja niðri frá því í hádeginu föstudaginn 4. september.
Stefnt er að því að vefurinn og sem flest kerfi verði komin upp á nýjan leik strax um kvöldið á föstudeginum en það gæti dregist fram eftir helginni.
Hagstofan tekur til starfa í nýju húsnæði frá og með mánudeginum 7. september.
