Hagstofa Íslands hefur í dag gefið út bækling á ensku, Iceland in figures 2016, þar sem nálgast má ýmsar lykiltölur um land og þjóð á handhægan hátt. Þetta er tuttugasti og fyrsti árgangur bæklingsins en hann er sniðinn að ferðaþjónustunni og hefur átt miklum vinsældum að fagna meðal leiðsögumanna og annarra ferðalanga.
Þó að bæklingurinn sé smár í sniðum (11x16 sm) skiptist hann í 18 kafla og í honum eru yfir 40 töflur og 19 myndrit. Efni hans er byggt á Landshögum, árbók Hagstofunnar, og geymir hann m.a. upplýsingar um veðráttu, umhverfi, mannfjölda, laun og tekjur, lífskjör, vinnumarkað, atvinnuvegi, utanríkisverslun, samgöngur, upplýsingatækni, ferðaþjónustu, verðlag, neyslu, þjóðarbúskap, heilbrigðismál, félagsmál, skóla, menningu, kosningar og fleira.
Bæklingurinn kostar 650 krónur og er til sölu í afgreiðslu Hagstofu Íslands að Borgartúni 21a í Reykjavík. Hann má einnig kaupa í öllum helstu bókaverslunum. Þá má panta hann á netinu og fá hann sendan heim að dyrum. Hann má einnig skoða hér á vefnum endurgjaldslaust.
Iceland in figures 2016 - útgáfa