Hagstofa Íslands hefur í dag gefið út enskan bækling, Iceland in figures 2011, þar sem nálgast má ýmsar lykiltölur um land og þjóð á handhægan hátt. Þetta er sextándi árgangur bæklingsins en hann er sniðinn að ferðaþjónustunni og hefur átt miklum vinsældum að fagna meðal leiðsögumanna.
Þó að bæklingurinn sé smár í sniðum (11x16 sm) skiptist hann í 18 kafla og í honum eru yfir 50 töflur og 15 myndir. Efni hans er byggt á Landshögum, árbók Hagstofunnar, og geymir hann m.a. upplýsingar um veðráttu, umhverfi, mannfjölda, laun, tekjur, vinnumarkað, atvinnuvegi, utanríkisverslun, samgöngur, upplýsingatækni, ferðaþjónustu, verðlag, neyslu, þjóðarbúskap, heilbrigðismál, félagsmál, skóla, menningu, kosningar og fleira.
Mörg undanfarin ár hefur bæklingurinn komið út bæði á íslensku og ensku en að þessu sinni er hann eingöngu fáanlegur á ensku.
Bæklingurinn kostar einungis 350 krónur og er til sölu í afgreiðslu Hagstofu Íslands að Borgartúni 21a í Reykjavík. Einnig er hægt að panta hann á netinu og fá hann sendan heim að dyrum. Hann má einnig skoða hér á vefnum endurgjaldslaust.
Iceland in figures 2011 - útgáfa