FRÉTT ÝMISLEGT 25. NÓVEMBER 2013

Árið 2012 voru 1.112 gjaldþrot hér á landi og fækkaði um tæp 30% frá árinu áður. Flest gjaldþrot voru í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð.

Þessar upplýsingar má finna í Landshögum 2013, hagtöluárbók Hagstofu Íslands, sem kemur út í dag, mánudaginn  25. nóvember. Landshagir eru lykilrit um opinbera hagskýrslugerð á Íslandi og er yfirlit tölulegra upplýsinga um flesta þætti íslensks samfélags.

Af öðrum upplýsingum í Landshögum 2013 má m.a. nefna þessar:

  • Þátttaka í alþingiskosningunum 2013 var 81,5%
  • Hver landsmaður fór einu sinni á ári í leikhús
  • Brautskráðir doktorar hafa aldrei verið fleiri
  • Það dró úr atvinnuleysi á milli ára
  • Friðland stækkaði verulega árið 2012
  • Fiskafli jókst um 26% milli ára

 

Landshagir eru til sölu í öllum helstu bókaverslunum og kosta einungis 3.500 krónur. Bókin er einnig til sölu í afgreiðslu Hagstofu Íslands að Borgartúni 21a. Þá má panta ritið á vefnum, en einnig má nálgast efni Landshaga endurgjaldslaust á vef Hagstofu Íslands.

Landshagir 2013 – Útgáfa

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.