Af heildarorkunotkun í landinu árið 2013 var jarðhiti rúmlega 69%, vatnsorka tæp 18% en innflutt orka (svo sem olía og kol) einungis 14%. Til samanburðar má geta þess að árið 1992 var innflutt orka um 34% af heildarorkunotkun.
Þessar upplýsingar má finna í Landshögum 2014, hagtöluárbók Hagstofu Íslands, sem kemur út í dag þriðjudaginn 2. desember. Landshagir eru lykilrit um opinbera hagskýrslugerð á Íslandi og er yfirlit tölulegra upplýsinga um flesta þætti íslensks samfélags.
Af öðrum upplýsingum í Landshögum 2014 má nefna þessar:
- Íbúum landsins fjölgar um 1,2%
- Hlutfall kvenna aldrei hærra í sveitarstjórnarkosningum
- Dregur úr atvinnuleysi á milli ára
- Regluleg laun fullvinnandi voru 436 þúsund krónur á mánuði
- Karlar sem búa einir eru verr staddir fjárhagslega en konur sem búa einar
- Heildarútgjöld til heilbrigðismála eru 9% af landsframleiðslu
- Viðtakendum greiðslna vegna fæðingarorlofs fækkaði á milli ára
- 98% landsmanna teljast til netnotenda
- Verðbólga var 3,9% á árinu 2013
- 3,5% hagvöxtur árið 2013
- Mannfjöldi í heiminum er rúmir 7 milljarðar
Landshagir 2014 – Útgáfa