FRÉTT ÝMISLEGT 25. FEBRÚAR 2020

Samstarfssamningur um upplýsingamiðlun var í dag undirritaður á milli Hagstofu Íslands og Þjóðskrár Íslands.

Ólafur Hjálmarsson hagstofustjóri og Margrét Hauksdóttir, forstjóri Þjóðskrár, undirrituðu samninginn í húsakynnum Hagstofunnar.

Tilgangur samningsins er að kveða á um hvernig samstarfi Hagstofunnar og Þjóðskrár um upplýsingagjöf og gagnamiðlun skuli vera háttað, en stofnanirnar tvær hafa á liðnum árum átt farsælt samstarf.

Frá undirritun samstarfssamningsins. Fremri röð frá vinstri: Ólafur Hjálmarsson hagstofustjóri og Margrét Hauksdóttir, forstjóri Þjóðskrár Íslands. Aftari röð frá vinstri: Hrafnhildur Arnkelsdóttir, sviðsstjóri félagsmálasviðs Hagstofunnar, Áslaug Dagbjört Benónýsdóttir, gæðastjóri Hagstofunnar, Guðni Rúnar Gíslason, deildarstjóri upplýsinga- og samskiptadeildar Þjóðskrár, og Björg Finnbogadóttir, lögfræðingur hjá Þjóðskrá.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.