Tekjusagan.is hefur verið uppfærð með gögnum frá árinu 2022. Vefur tekjusögunnar var gerður að frumkvæði forsætisráðuneytisins með gögnum frá Hagstofu Íslands og birtist upphaflega árið 2019.
Vefurinn sýnir þróun ráðstöfunartekna, eigna og skulda landsmanna auk heildartekna kynja eftir menntun, aldri, búsetu og hjúskaparstöðu. Allar fjárhæðir tekjusögunnar eru á föstu verðlagi ársins 2022. Hagstofa Íslands hefur hér eftir umsjón með uppfærslu tekjusögunnar.
Analytica bjó til og uppfærir reiknilíkan ráðstöfunartekna sem er til grundvallar og Metadata sér um framsetningu gagnanna og vefforritun.
Meðal upplýsinga sem hægt er að sjá á vefnum:
-
Árið 2022 voru samanlagðar ráðstöfunartekjur án fjármagnstekna fyrir hjón eða sambúðarfólk á aldrinum 25-64 ára með 1-2 börn á landinu öllu 1,1 milljón krónur á mánuði.
-
Samanlagðar lífeyrissjóðstekjur hjóna eða sambúðarfólks 68 ára eða eldra hækkuðu árið 2022 og hafa aldrei verið hærri að raungildi. Þetta á við hvort sem viðkomandi þáðu einnig greiðslur frá Tryggingastofnun eða ekki.
-
Eiginfjárstaða fólks batnaði árið 2022 en er almennt talsvert betri á höfuðborgarsvæðinu en hjá fólki búsettu á landsbyggðinni.
-
Heildartekjur karla í sambúð voru 37% hærri en einhleypra karla og heildartekjur kvenna í sambúð voru 19% hærri en einhleypra kvenna.