Miðla- og menningarvog 2023 varpar ljósi á fjölmiðlanotkun og menningarþátttöku landsmanna. Á meðal niðurstaðna er að fólk á aldrinum 16 ára og eldra varði að jafnaði hátt í sjö klukkustundum daglega í notkun hvers kyns fjölmiðla og fast að annar hver hafði iðkað tónlist sem áhugamál síðastliðna 12 mánuði. Þetta er í fyrsta sinn sem Hagstofa Íslands framkvæmir slíka athugun en gert er ráð fyrir að hún verði endurtekin á þessu ári.