FRÉTT ÝMISLEGT 10. APRÍL 2026

Verðlaunaafhending Greindu betur fór fram miðvikudaginn 8. apríl í fimmta sinn frá upphafi keppninnar. Keppnin er árleg landskeppni í gagna- og upplýsingalæsi og jafnframt undankeppni fyrir Evrópsku tölfræðikeppnina. Hagstofa Íslands er gestgjafi keppninnar, sem er styrkt af Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins.

Keppt var í tveimur flokkum, yngri flokki (9.-10. bekkur í grunnskóla) og eldri flokki (1.-3. ár í framhaldsskóla).

Fyrsta sætið í yngri flokknum hlaut liðið Xenofon frá Garðaskóla með verkefnið Frjósemishlutfall á Íslandi. Í öðru sæti var liðið OAK frá Háaleitisskóla með verkefnið Ættleiðingar. Í þriðja sæti var liðið Rotturnar frá Brekkuskóla með verkefnið Losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi.

Fyrsta sætið í eldri flokknum hlaut liðið Refirnir frá Verzlunarskóla Íslands með verkefnið Þróun húsnæðismarkaðar á 21. öldinni. Í öðru sæti var liðið Janym2026 einnig frá Verzlunarskóla Íslands með verkefnið Hvert er samband raforkunotkunar og hagvaxtar? Í þriðja sæti var liðið K2Rocket frá Tækniskólanum með verkefnið Tengsl íbúðauppbyggingar, íbúafjölgunar og verðþróunar á Íslandi.

Verðlaunin veitti Hrafnhildur Arnkelsdóttir hagstofustjóri. Í dómnefnd sátu Anna Helga Jónsdóttir, prófessor í tölfræði við Háskóla Íslands, Auðun Valborgarson, sérfræðingur í úrvinnslu gagna og prófagerð, Ingimar Guðmundsson, sérfræðingur í mati og stefnumótun í málefnum barna og ungmenna, Bergný Edda Tryggvadóttir og Sesselja Hreggviðsdóttir, báðar sérfræðingar hjá Hagstofu Íslands. Keppnin er þverfaglegt tilraunaverkefni sem ætlað er að veita unglingum á aldrinum 14 til 19 ára tækifæri til að efla hæfni sína í því að nýta upplýsingar á ábyrgan, skapandi og gagnrýninn hátt til að taka upplýstar ákvarðanir.

Á myndinni er hagstofustjóri, keppendur og liðsstjórar sigurliðanna. Athygli er vakin á því að liðið frá Brekkuskóla tók þátt rafrænt í verðlaunahátíðinni og er því ekki á myndinni.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.