Leiðbeiningar / Talnagrunnur
Búa til fyrirspurnir í px-töflum
Hægt er að búa til fyrirspurnir í px-töflunum og vista/geyma þær. Fyrirspurnirnar uppfærast þegar ný gögn eru gefin út.
Þetta er hægt við flestar töflur á vef Hagstofunnar, einstaka töflur eru þó ekki með skilgreinda svokallaða tímabreytu og er þetta þá ekki hægt. Þá koma þessi skilaboð þegar valið er að búa til fyrirspurn: Það er ekki mögulegt að uppfæra leitina þar sem engin tímabreyta er skilgreind í þessari töflu.
Fyrst þarf að velja úr töflunni það sem á að vera í fyrirspurninni, sjá leiðbeiningar um hvernig valið er úr töflum (px-töflum).
Valið er Búa til fyrirspurn
Byrjað er á að velja tímabil fyrir fyrirspurnina.
- Sami fjöldi tímabila með nýjasta tímabil uppfært. Þessi fyrirspurn skilar alltaf fimm árum talið frá og með nýjasta árinu. Þegar ný gögn koma í þessa töflu skilar fyrirspurnin runum 2020 til 2024.
- Fast upphafstímabil með hækkandi fjölda uppfærðra tímabila. Þessi fyrirspurn skilar gögnum frá árinu 2019 og bætir síðan nýjum árum við.
- Sömu tímabil og valin voru. Fyrirspurnin skilar eingöngu niðurstöðum fyrir þau ár sem valin voru. Hér fyrir neðan árunum 2019-2023.
- Tafla á skjá. Smellt er þarna til að sjá lista yfir þau form sem hægt er að vista niðurstöðurnar á.
Velja hvernig vista eigi niðurstöðurnar
Hægt er að vista niðurstöðurnar á margs konar formum eins og sést í listanum hér fyrir ofan. Þegar formið hefur verið valið er ýtt á Vista niðurstöður.
Hægt er að senda slóðina með tölvupósti eða afrita.
Ef valin er tafla á skjá er t.d. hægt að afrita slóðina í vafra og vista þar. Þegar ný gögn koma í töfluna uppfærist taflan í vafranum.
Ef þú vilt fá gögnin í Excel
- Fyrst velurðu Excel (xlsx) í listanum.
- Síðan nærðu í slóðina, afritar hana eða sendir í tölvupósti.
- Loks opnarðu Excel.
- Velur Data í flipanum uppi.
- Velur From Web í stikunni.
- Afritar slóðina undir URL í glugganum sem opnast og smellir á OK.
- Smellir á númer töflunnar í glugganum sem opnast.
- Velur síðan annað hvort Laod eða Transform data og þá birtast niðurstöðurnar.
Þegar ný gögn koma gæti þurft að ýta á Refresh í stikunni fyrir ofan.