Tilraunatölfræði
Heimilisstörf í kórónuveirufaraldrinum - tt
Heimilisstörf í kórónuveirufaraldrinum
Samantekt
Hér eru birtar bráðabirgðatölur um verkaskiptingu, tíma varið í umönnun og heimilisstörf og áhrifin af kórónuveirufaraldrinum úr lífskjararannsókn Hagstofu Íslands. Um er að ræða niðurstöður úr átta spurningum sem bætt var við rannsóknina sem lögð var fyrir á vormánuðum ársins 2021 í samvinnu við forsætisráðuneytið. Nánari upplýsingar um rannsóknina og spurningarnar er að finna í lýsigögnum neðst á síðunni.
Lýsing
Niðurstöður eru greindar eftir kyni, hvort börn eru á heimilinu eða ekki og því hvort fólk býr innan eða utan höfuðborgarsvæðis. Niðurstöður eru vegnar með bráðabirgðavog sem byggð er á kyni, tekjum, búsetu, menntun og aldri.
Markmið
Kórónuveirufaraldurinn hefur haft víðtæk áhrif á samfélagið á öllum sviðum þess og áhrif hans verið ólík á mismunandi hópa fólks. Aukin heimavera sem fylgir fjarvinnunni, og skertu skóla- og frístundastarfi, vakti spurningar um kynjuð áhrif af faraldrinum á heimilin og er niðurstöðum ætlað að varpa ljósi á þau áhrif.
Aukið álag á barnafjölskyldur í kórónuveirufaraldrinum
Síðast uppfært: 19. nóvember 2021
Vorið 2021 taldi meirihlutinn álag af heimilisstörfunum vera svipað og það var fyrir kórónuveirufaraldurinn, eða 76% kvenna og 80% karla en 15% beggja kynja taldi álagið hafa aukist. Hins vegar reyndist töluverður munur á svörum eftir því hvort börn voru á heimilinu eða ekki og hafði álagið aukist hjá fjórðungi með barn eða börn á heimilinu á móti rétt um einum af hverjum tíu á heimilum án barna. Meiri fjarvinna virðist þó ekki hafa haft teljandi áhrif á verkaskiptingu á heimilum, þ.e. hvernig heimilisstörfum er skipt á milli para, þar sem 83% einstaklinga með börn og 89% einstaklinga á heimilum án barna sögðu verkaskiptinguna vera svipaða nú og áður. Þó virðist sem frekar hafi orðið vart breytinga á verkaskiptingu á heimilum með börn en barnlausum þar sem 9% einstaklinga með börn sögðu hana vera jafnari nú en áður, á móti 6% einstaklinga á barnlausum heimilum, og 7% svarenda með börn sögðu hana ójafnari nú en áður á móti 4% barnlausra.
Fleiri stundir í heimilisstörf á landsbyggðinniAð meðaltali verja konur 9,2 klukkustundum á viku í heimilisstörf og karlar 7,1, þeir sem búa einir verja minni tíma í heimilisstörf en fólk í sambúð og fólk í sambúð með börn á heimilinu meiri tíma en sambúðarfólk án barna. Slíkir þættir hafa þó nokkuð meiri áhrif á konur en karla, t.d. verja konur í sambúð með börn 2,8 klukkutímum meira í heimilisstörf en konur í sambúð án barna, á meðan munurinn á milli karla í sömu stöðum er 2,4 klukkustund.
Á mynd 1 sést áætlaður heildartími para við heimilisstörf. Eins og búast mátti við er samtala para með börn á heimilinu hærri en samtala barnlausra para en myndin sýnir líka að fólk á landsbyggðinni ver meiri tíma í heimilisstörf en fólk á höfuðborgarsvæðinu.
Konur verja um 10 klukkustundum á viku að meðaltali í umönnun barna og annarra ættingja, en karlar tæpum 8 klukkustundum. Þetta meðaltal segir þó afar takmarkaða sögu, eins og sést þegar fólk með börn á heimilinu er borið saman við fólk á barnlausum heimilum, en konur og karlar með börn á heimilinu verja 22 og 17 klukkustundum í umönnun á viku á móti ríflega 2 klukkustundum hjá fólki af báðum kynjum sem ekki er með börn. Þegar tíminn sem fólk ver í umönnun er skoðaður eftir búsetu sést að barnlaus pör verja samtals tæpum sex klukkutímum á viku í umönnun hvort sem þau búa innan eða utan höfuðborgarsvæðisins. Hins vegar munar tæpum þremur klukkustundum á tíma sem varið er í umönnun á heimilum með börn, eftir búsetu, þar sem samtala para með börn á landsbyggðinni er ríflega 46 klukkustundir en para með börn á höfuðborgarsvæðinu tæpir 44 klukkutímar.
Karlar sáttari við sitt framlag í heimilisverkunumUm 55% telja að þau geri u.þ.b. sinn hluta og er ekki munur á þessu hlutfalli eftir búsetu. Hins vegar, þegar litið er til kyns, eru karlar umtalsvert líklegri til þess að vera sáttir við sitt framlag eða 62% á móti 49% kvenna. Konur eru á móti líklegri til þess að telja sig gera meira en þeim ber því 46% kvenna segjast gera meira en sinn hluta en 9% karla. Auk þess finnst næstum þriðjungi karla, eða 29%, þeir gera minna en þeim ber en aðeins 6% kvenna.
Gera verður greinarmun á sanngirni verkaskiptingar og jöfnuði enda getur verkaskipting til dæmis verið á þann hátt að annar aðilinn sér alfarið um heimilið á meðan hinn sinnir engum heimilisverkum og báðum aðilum fundist það sanngjarnt.
Talnaefni
Heimilisstörf í kórónuveirufaraldrinum 191121 (xlsx)
Lýsigögn
Lýsigögn um heimilisstörf í kórónuveirufaraldrinum
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1285. Netfang: thora.k.thorsdottir@hagstofa.is