Tilraunatölfræði
Útflutningsverðmæti sjávarafurða - tt
Vöruviðskipti við útlönd
Samantekt
Upplýsingar um vöruviðskipti Íslands við útlönd eru að mestu fengnar úr tollskýrslum. Hagstofa Íslands hefur óskað eftir aukinni tíðni gagnasendinga frá tollinum og getur því veitt tímanlegri gögn um þróun inn- og útflutnings til og frá landinu.
Lýsing
Hagstofa Íslands gefur út gögn um vöruviðskipti við útlönd tvisvar í mánuði. Í upphafi mánaðar eru gefnar út bráðabirgðatölur mánaðarins á undan þar sem leiðrétt hefur verið fyrir öfgagildum. Í lok mánaðar eru svo sami mánuður gefinn út yfirfarinn. Gögnin byggja á tollskýrslum sem berast Hagstofu Íslands allajafna mánaðarlega frá hugbúnaðarfyrirtækinu Advania. Engar breytingar verða á tíðni hefðbundinnar útgáfu.
Til að mæta þörf fyrir ítarlegri tölfræði um framvindu efnahagsmála við núverandi aðstæður hefur tíðni gagnasendinga frá Tollinum í samstarfi við Advania verið aukin úr mánaðarskilum í vikuskil. Hagstofa Íslands getur því birt tímanlegri gögn en áður. Mikilvægt er að undirstrika að hér er um tilraunatölfræði að ræða og niðurstöður því háðar miklum fyrirvörum um breytingar þegar frekari talnavinnsla á sér stað.
Markmið
Með tímanlegri gögnum má gefa góða vísbendingum um breytt mynstur í vöruviðskiptum og fylgjast með þeirri þróun nær rauntíma.
Samdráttur í útflutningsverðmæti sjávarafurða
Síðast uppfært: 17. apríl 2020
Eftir því sem best verður séð hefur útflutningsverðmæti sjávarafurða fylgt hefðbundnu mynstri það sem af er ár miðað við framvinduna fyrstu 15 vikur ársins. Töluverðar sveiflur eru á milli vikna en þær sveiflur virðast enn sem komið er vera keimlíkar þróun síðustu tveggja ára.
Heildarverðmæti útfluttra sjávarafurða á fyrstu 15 vikum ársins, þ.e. fram að páskum, nam 68,3 milljörðum króna og dróst saman um 7,7% miðað við sama tímabil í fyrra. Á föstu gengi dróst heildarverðmætið saman um 12,2% á milli ára.
Talnaefni
Útflutningsverðmæti sjávarafurða - vikugögn 170420 (xlsx)
Lýsigögn
Vikuleg gögn núverandi mánaðar sem og mánaðarins á undan teljast bráðabirgðatölur. Leiðrétt hefur verið fyrir öfgagildum en tölur geta tekið breytingum við yfirferð. Tölur eru reiknaðar á fast gengi út frá opinberri gengisvísitölu Seðlabanka Íslands.
Nánari lýsigögn um vöruviðskipt við útlönd má finna hér: Lýsigögn um vöruviðskipt við útlönd