Ferðaþjónustureikningar 2009-2011


  • Hagtíðindi
  • 15. desember 2011
  • ISSN: 1670-4584

  • Skoða PDF
Landsframleiðsla frá framleiðsluhlið dróst saman um 7,9% árið 2009 en ferðaþjónusta nokkru minna (6,8%) sem skýrir 1,3% hærra hlutfall greinarinnar í vergri landsframleiðsla árið 2009. Heildarumsvif fyrirtækja í ferðaþjónustu árið 2009 námu ríflega 230 milljörðum króna eða sem svarar rúmlega 15% af vergri landsframleiðslu og hafa þá umsvif íslenskra ferða- og flugþjónustufyrirtækja vegna starfsemi utan Íslands verið áætluð. Heildarferðaneysla innanlands árið 2009 var rúmlega 184 milljarðar króna eða sem svarar rúmlega 12,3% af vergri landsframleiðslu.

Til baka