Gistingar ferðamanna 2013


  • Hagtíðindi
  • 16. apríl 2014
  • ISSN: 1670-4584

  • Skoða PDF
Seldar gistinætur voru 4,3 milljónir hér á landi árið 2013 og fjölgaði um tæp 15% frá fyrra ári. Gistinætur erlendra gesta voru 79% af heildarfjölda gistinátta og fjölgaði þeim um 17% frá árinu 2012. Gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 8%. Tveir þriðju allra gistinátta voru á hótelum og gistiheimilum, 12% á tjaldsvæðum og 22% á öðrum tegundum gististaða. Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum nema á Vestfjörðum, en hlutfallslega fjölgaði gistinóttum mest á Suðurnesjum og Austurlandi.

Til baka