- Hagtíðindi
- 11. apríl 2006
- ISSN: 1670-4584
-
Skoða PDF
Heildarfjöldi gistinátta var 2.232.911 árið 2005 sem er 4,8% aukning frá fyrra ári. Gistinóttum fjölgaði frá árinu 2004 á hótelum og gistiheimilum um 6,8%, orlofshúsabyggðum um 25,7%, í skálum í óbyggðum um 3,4% og á farfuglaheimilum
um 0,2%. Gistinóttum fækkaði hins vegar á heimagististöðum um 8,2%, svefnpokagististöðum um 3,4% og á tjaldsvæðum um 2,8%.