Fjármál hins opinbera 2008


  • Hagtíðindi
  • 11. september 2009
  • ISSN: 1670-4665

  • Skoða PDF
Tekjuafkoma hins opinbera var neikvæð um 200 milljarða króna árið 2008, eða 13,6% af landsframleiðslu og 30,6% af tekjum þess. Til samanburðar var tekjuafkoman jákvæð um 5,4% af landsframleiðslu 2007 og 6,3% árið 2006. Þessi skarpi viðsnúningur skýrist fyrst og fremst af 192,2 milljarða króna yfirtöku ríkissjóðs á töpuðum kröfum vegna veðlána Seðlabanka Íslands en án hennar var tekjuafkoman neikvæð um 8 milljarða króna eða 0,5% af landsframleiðslu.

Til baka