Fjármál hins opinbera 2011, bráðabirgðauppgjör


  • Hagtíðindi
  • 09. mars 2012
  • ISSN: 1670-4665

  • Skoða PDF
Tekjuafkoma hins opinbera var neikvæð um 71,5 milljarða króna árið 2011 eða 4,4% af landsframleiðslu. Til samanburðar var tekjuafkoman neikvæð um 154,6 milljarða króna árið 2010 eða 10% af landsframleiðslu, en án áfallinna ríkisábyrgða 2010 var hún neikvæð um 99 milljarða króna eða 6,5% af landsframleiðslu. Tekjur hins opinbera námu um 680 milljörðum króna og hækkuðu um 42 milljarða króna milli ára eða um 6,6%. Sem hlutfall af landsframleiðslu mældust þær 41,7% samanborið við 41,5% 2010 og 41,1% 2009.

Til baka