Fjármál hins opinbera 2013 - endurskoðun


  • Hagtíðindi
  • 23. september 2014
  • ISSN: 1670-4665

  • Skoða PDF
Tekjuafkoma hins opinbera var neikvæð um 32 milljarða króna árið 2013 eða 1,7% af landsframleiðslu. Til samanburðar var tekjuafkoman neikvæð um 65,2 milljarða króna árið 2012 eða 3,7% af landsframleiðslu. Tekjur hins opinbera námu tæpum 796 milljörðum króna og jukust um 55 milljarða króna milli ára eða um 7,4%. Sem hlutfall af landsframleiðslu mældust þær 42,5%. Útgjöld hins opinbera voru 828 milljarðar króna og jukust um 22 milljarða króna milli ára eða 2,7% en hlutfall þeirra af landsframleiðslu var 44,2%.

Til baka