Fjármál hins opinbera 2016 — endurskoðun


  • Hagtíðindi
  • 14. september 2017
  • ISSN: 1670-4770

  • Skoða PDF
Tekjuafkoma hins opinbera var jákvæð um 309,5 milljarða króna árið 2016 eða sem nemur 12,6% af landsframleiðslu. Til samanburðar var tekjuafkoman neikvæð um 18,2 milljarða króna árið 2015 eða 0,8% af landsframleiðslu. Tekjur hins opinbera námu 1.413,3 milljörðum króna og jukust um 51,8% milli ára. Sem hlutfall af landsframleiðslu mældust þær 57,7%. Þessi góða afkoma skýrist öðru fremur af 384,2 milljarða króna stöðugleikaframlagi frá slitabúum fallinna fjármálafyrirtækja. Útgjöld hins opinbera voru 1.103,8 milljarðar króna á árinu 2016 og jukust um 16,3% en hlutfall þeirra af landsframleiðslu var 45,1%. Meðtalið í útgjöldum hins opinbera er gjaldfærsla upp á 105,1 milljarð króna vegna fjármagnstilfærslu ríkissjóðs til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins.

Til baka