Fjármál hins opinbera á 1. ársfjórðungi 2008


  • Hagtíðindi
  • 13. júní 2008
  • ISSN: 1670-4665

  • Skoða PDF
Á 1. ársfjórðungi 2008 nam tekjuafgangur hins opinbera 16,2 milljörðum króna sem er heldur lakari afkoma en á 1. ársfjórðungi 2007 er hann mældist 21,5 milljarðar króna. Sem hlutfall af landsframleiðslu var tekjuafgangurinn 1,2% og sem hlutfall af tekjum hins opinbera 10,2%. Þessi hagstæða afkoma skýrist fyrst og fremst af góðri afkomu ríkissjóðs sem mældist 13,5 milljarðar króna, en afkoma sveitarfélaganna var einnig viðunandi eða 1,3 milljarðar króna samkvæmt áætlun.

Til baka