Fjármál hins opinbera á 1. ársfjórðungi 2015


  • Hagtíðindi
  • 09. júní 2015
  • ISSN: 1670-4665

  • Skoða PDF
Tekjuafkoma hins opinbera reyndist neikvæð um 14,9 milljarða króna á 1. ársfjórðungi 2015, en það er mun lakari niðurstaða en á sama tíma 2014 þegar hún var jákvæð um 10,1 milljarð króna. Tekjuhallinn nam 2,9% af landsframleiðslu ársfjórðungsins eða 6,9% af tekjum hins opinbera. Heildartekjur hins opinbera stóðu í stað milli 1. ársfjórðungs 2014 og 2015. Hins vegar jukust heildarútgjöld hins opinbera um 12,2% á sama tímabili.

Til baka