Fjármál hins opinbera á 2. ársfjórðungi 2012


  • Hagtíðindi
  • 10. september 2012
  • ISSN: 1670-4665

  • Skoða PDF
Tekjuafkoma hins opinbera var neikvæð 12,3 milljarða króna á 2. ársfjórðungi 2012 sem er nokkru hagstæðari niðurstaða en á sama tíma 2011 er hún var neikvæð um 18,6 milljarða króna. Tekjuhallinn nam 2,9% af landsframleiðslu ársfjórðungsins og 6,7% af tekjum hins opinbera.Heildartekjur hins opinbera hækkuðu um ríflega 10% milli 2. ársfjórðungs 2011 og 2012 eða úr 166,3 milljörðum króna í 183,4 milljarða króna.

Til baka