- Hagtíðindi
- 14. desember 2007
- ISSN: 1670-4665
-
Skoða PDF
Á 3. ársfjórðungi 2007 nam tekjuafgangur hins opinbera 13 milljörðum króna samanborið við 17,3 milljarða króna á sama tíma 2006. Sem hlutfall af landsframleiðslu var tekjuafgangurinn 1,1% og sem hlutfall af tekjum hins opinbera 8,7%. Á fyrstu 9 mánuðum ársins mældist tekjuafkoma hins opinbera jákvæð um 41,9 milljarða króna, sem samsvarar 3,4% af landsframleiðslu, en á sama tíma 2006 var tekjuafkoman hins vegar jákvæð um 50,2 milljarða króna.