Fjármál hins opinbera á 3. ársfjórðungi 2012


  • Hagtíðindi
  • 10. desember 2012
  • ISSN: 1670-4665

  • Skoða PDF
Tekjuafkoma hins opinbera var neikvæð um 8,4 milljarða króna á 3. ársfjórðungi 2012 sem er nokkru hagstæðari niðurstaða en á sama tíma 2011 er hún var neikvæð um 14,4 milljarða króna. Tekjuhallinn nam 1,9% af landsframleiðslu ársfjórðungsins og 4,5% af tekjum hins opinbera. Fyrstu níu mánuði ársins reyndist tekjuafkoma hins opinbera neikvæð um 29 milljarða króna eða 2,3% af landsframleiðslu þess tímabils, en til samanburðar var tekjuafkoman neikvæð um 46 milljarða króna á sama tíma 2011 eða 3,8% af landsframleiðslu.

Til baka