Fjármál hins opinbera á 3. ársfjórðungi 2013


  • Hagtíðindi
  • 09. desember 2013
  • ISSN: 1670-4665

  • Skoða PDF
Tekjuafkoma hins opinbera hefur batnað það sem af er þessu ári. Hún var neikvæð um 2,4 milljarða króna á 3. ársfjórðungi 2013 sem er hagstæðari niðurstaða en á sama tíma 2012 er hún var neikvæð um 6,7 milljarða króna. Tekjuhallinn nam 0,5% af landsframleiðslu ársfjórðungsins og 1,2% af tekjum hins opinbera. Fyrstu níu mánuði ársins reyndist tekjuafkoma hins opinbera neikvæð um 18,1 milljarð króna eða 1,4% af landsframleiðslu þess tímabils.

Til baka