Fjármál hins opinbera á 4. ársfjórðungi 2011


  • Hagtíðindi
  • 09. mars 2012
  • ISSN: 1670-4665

  • Skoða PDF
Tekjuafkoma hins opinbera reyndist neikvæð um 29 milljarða króna á 4. ársfjórðungi 2011 eða sem nemur 7% af áætlaðri landsframleiðslu ársfjórðungsins og 16,6% af tekjum hins opinbera. Þetta má bera saman við rúmlega 31 milljarðs neikvæða afkomu á sama tíma 2010 sé 55,5 milljarða áfallin ríkisábyrgð í árslok 2010 undanskilin. Í heild varð tekjuafkoma hins opinbera neikvæð um 71,5 milljarða króna árið 2011 eða sem svarar 4,4% af landsframleiðslu. Árið 2010 var tekjuafkoman hins vegar neikvæð um 154,6 milljarða króna eða 10% af landsframleiðslu.

Til baka