Fjármál hins opinbera á 4. ársfjórðungi 2016


  • Hagtíðindi
  • 15. mars 2017
  • ISSN: 1670-4770

  • Skoða PDF
Tekjuafkoma hins opinbera var jákvæð um 27,3 milljarða króna á fjórða ársfjórðungi 2016. Það er betri niðurstaða en á sama tíma 2015 þegar afkoman var jákvæð um 14,2 milljarða króna. Tekjuafgangurinn nam 4,3% af landsframleiðslu ársfjórðungsins eða 9,4% af tekjum hins opinbera. Tekjuafkoma ársins í heild reyndist jákvæð um 416,8 milljarða króna eða sem nemur 29,5% af tekjum hins opinbera. Þessi góða afkoma skýrist meðal annars af 384,3 milljarða króna tekjum af stöðugleikaframlagi frá slitabúum fallinna fjármálafyrirtækja.

Til baka