Alþingiskosningar 25. september 2021


  • Hagtíðindi
  • 21. desember 2022
  • ISSN: 1670-4770

  • Skoða PDF
Kosið var til Alþingis 25. september 2021. Við kosningarnar voru alls 254.586 á kjörskrá eða 69,0% landsmanna. Af þeim greiddu 203.898 atkvæði eða 80,1% kjósenda. Kosningaþátttaka kvenna var 81,5% en karla 78,7%. Kosningaþátttakan var breytileg eftir aldri og var hún minni meðal yngri en eldri kjósenda. Kosningaþátttakan var 83,0% á meðal einstaklinga sem hafa engan erlendan bakgrunn á meðan hún var 42,1% á meðal innflytjenda. Við kosningarnar greiddu 47.696 manns atkvæði utan kjörfundar eða 23,4% en sambærilegt hlutfall var 18,6% í kosningunum 2017.

Til baka