Alþingiskosningar 28. október 2017


  • Hagtíðindi
  • 21. desember 2017
  • ISSN: 1670-4770

  • Skoða PDF
Kosið var til Alþingis 28. október 2017. Við kosningarnar voru alls 248.485 á kjörskrá eða 73,4% landsmanna. Af þeim greiddu 201.792 atkvæði eða 81,2% kjósenda. Kosningaþátttaka kvenna var 82,1% en karla 80,3%. Kosningaþátttakan var breytileg eftir aldri og var hún minni meðal yngri en eldri kjósenda. Við kosningarnar greiddu 37.557 manns atkvæði utan kjörfundar eða 18,6% kjósenda en sambærilegt hlutfall var 16,2% í kosningunum 2016.

Til baka