- Hagtíðindi
- 12. nóvember 2024
- ISSN: 1670-4770
-
Skoða PDF
Forsetakjör fór fram 1. júní 2024. Við kosningarnar voru alls 266.778 á kjörskrá eða 69,1% landsmanna. Af þeim greiddu 215.635 atkvæði eða 80,8% kjósenda. Kosningaþátttaka kvenna var 83,3%, karla 78,3% og kynsegins/annars 67,1%. Hlutfall utankjörfundaratkvæða af greiddum atkvæðum var 25,0% samanborið við 31,1% í forsetakosningunum 2020. Tólf frambjóðendur voru í kjöri til embættis forseta Íslands. Úrslit forsetakjörs urðu þau að Halla Tómasdóttir hlaut flest atkvæði, 73.184 eða 34,1% gildra atkvæða, og var hún því kjörin forseti Íslands fyrir tímabilið frá 1. ágúst 2024 til 31. júlí 2028.