- Hagtíðindi
- 16. ágúst 2018
- ISSN: 1670-4770
-
Skoða PDF
Tilgangur greinargerðarinnar er að lýsa launavísitölu Hagstofu Íslands, ásamt gögnum og
tölfræðiaðferðum sem lögð eru til grundvallar útreikningum. Aðferðir launavísitölu eru settar
í samhengi við almenna aðferðafræði verðvísitalna og lagt mat á þekktar skekkjur við
útreikninga á vísitölum, rek (e. chaining drift) og líftíma mælieininga (e. life‐cycle errors), í
tilviki launavísitölu.