Vísitala launa 2011


  • Hagtíðindi
  • 16. mars 2012
  • ISSN: 1670-4509

  • Skoða PDF
Laun á íslenskum vinnumarkaði hækkuðu um 6,7% milli áranna 2010 og 2011 samkvæmt ársmeðaltali vísitölu launa. Þá hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 7,6% að meðaltali en laun opinberra starfsmanna um 4,4%. Á almennum vinnumarkaði hækkuðu laun sérfræðinga mest á milli ára eða um 8,9% en laun iðnaðarmanna hækkuðu minnst eða um 6,2%. Á sama tímabili var hækkun launa eftir atvinnugreinum á bilinu 4,7% til 10,0%.

Til baka